jæja þá er nýtt ár að fara að koma og mér hlakkar bara til því það
er svo mikið sem ég ætla að gera á nýja árinu

Bara góðir hlutir
hehe, Ég fer í starfsnám eftir áramót og tekur það 3 mánuði og
útskrifast ég þá úr skólanum, með því er ég að fara á námskeið í
baðhúsinu og taka líkaman á mér allan í gegn, ætla að kötta mig
feitt niður og verða bara einn massi hehehehehehehe


eða
svona stefni að því að verða stæltari og grennri

Ég hef mjög
mikla trú á þessu og að þetta muni takast. Svo er annað ekki alveg
jafn skemmtilegt og það er reykjalundur ég verð þar í 6-8 vikur en
fæ að vera heima um helgar en ég vona að það eigi eftir að hjálpa
mér og ég er búin að taka þá ákvörðun að hætta að reykja þegar ég
fer þangað er búin að hugsa mikið um það og mig langar það
virkilega þar sem ég er að fara að breyta algerlega um lífsstíl og
ætla að helga mér að ræktinni og koma mér í form og reykingar geta
eiðilagt pínu þar en jamm i will try my best



Jólin eru búin
að vera bara rosa fín fyrir utan alla þá peninga sem fóru bara í
eitthvað bull hummmm maður verður aðeins að passa sig stundum





Og kanski finnur maður draumaprinsinn á nýja árinu
( vonandi ) hehe langar í eitthvern sem mun stjana við mig og sem
finnst gaman að láta stjana við sig hehe

Er líka að fara með
Auði og Smári til Krótíu eftir ár eða held það hehe og þá yrði nú
gaman að geta tekið eitthvern með sem maður er kanski soldið skotin
í

Þar sem að þau eru par og næstum hjón hehe held að það verði
ekki gaman að vera þriðja hjólið og lúlla ein á Hóteli



Annars er bara búið að vera ágætt að vera
ein en auðvitað er maður alltaf til í eitthvað annað en að
vera ein. En nóg um það, það kemur bara þegar það á að koma!! Það
er allavega eitt á hreinu og það er að það eru ekki spennandi
strákar á djamminu og hef ég voða lítin áhuga á að kynnast þeim þar
hummmm!! Ég er orðin alveg frekar brún ég og Ásta erum búnar að
taka góða törn í ljósum núna undanfarið og er það bara gott mál þar
sem ég ætla að reyna að finna mér eitthvern hvítan flottan bol
fyrir áramótin og eitthvað flott pils, það klikkar ekki að vera
pínu brún í hvítu



Ég er að pæla í því að taka helgina bara
og njóta þess að vera til, hafa það kósí og liggja yfir dvd, nenni
ekki á eitthvað djamm, það er bara svo leiðinlegt að horfa ein á
dvd hehe, ég veit að stelpurnar fara á djammið eða eru að vinna

En ef ég enda ein þá verð ég bara ein, það er bara svo einmannalegt
hehehehehe nei nei segi svona það getur oft verið ágætt, hitt er
bara skemmtilegra hvað þá ef maður er með góða mynd... Ég ætla að
reyna að skella mér til Danmerkur í sumar að kíkja á litla
bumbubúan hennar Hófiar og Dóra, hún á að eiga í apríl minnir mig
og maður verður nú að fara og sjá litla krúttið

Er orðin alveg
frekar spennt þar sem Hófí mín er ein af mínum bestu vinkonum og ég
sakna hennar endalaust mikið og vill bara að hún komi heim og búi
hérna en maður fær ekki öllu ráðið


Þannig ég verð bara að fara
til hennar, Ég eiddi seinasta páskafríi hjá henni og Dóra og það
var alveg æðislegt og rosa gaman að vera hjá þeim!! Ég get bara
ekki ákveðið mig hvert ég á að fara um áramótin, mér langar geggjað
á áramóta partý og Pravda og vorum við stelpurnar búnar að ákveða
það en samt er eins og mig langi eitthvað annað æji ég er svo óviss
eitthvað, það er ekki gaman en það endar örugglega bara þar, fyrst
við vorum búnar að ákveða það!! En jæja ég ætla að fara að koma mér
í háttin og hvíla mig þarf að gera svo mikið á morgun over and out